Skólaakstur

Almennt um skólaakstur Auðarskóla

Skólabílar skulu leggja í fyrsta lagi af stað frá skólanum:
Mánudaga: Kl. 14.25   (Skóla lýkur 14.20)
Þriðjudaga til fimmtudaga: Kl. 15.15   (Skóla lýkur kl. 15.10)
Föstudaga: Kl. 12.35    (Skóla lýkur kl. 12.30)

Skólabílar skulu koma í Auðarskóla í fyrsta lagi kl. 08.15 að morgni hvers skóladags.
Veður og ófærð geta raskað tímasetningum.
Á allar leiðir eiga að vera skráðir varabílstjórar og getur því breyst frá degi til dags yfir skólaárið.

Mikilvægt er að bílstjórum sé tilkynnt ef breytingar verða á ferðum nemenda.
Skólinn þarf einnig að fá upplýsingar um það ef nemandi sem alla jafna fer með skólabíl á ekki að fara með bílnum þann daginn.

Skólabílstjórar skólaárið 2022 -2023

Leið 1 Guðbjörn Guðmundsson gsm 894-0058
Leið 2 Jón Egilsson gsm 897-1349
Leið 3 Sólrún Ósk Jónínudóttir gsm 834-0464
Leið 4 Þröstur Leó Þórðarson gsm 845-7042
Leið 5 María Hrönn Kristjánsdóttir gsm 849-1858
Leið 6 Sigurður Hrafn Jökulsson gsm 661-0434
Leið 7 Þórður Svavarsson gsm 896-1315
Leið 8 Sigmundur H. Sigmundsson gsm 894-4802

 

Um skólaakstur í Dalabyggð gilda „Reglur um skólaakstur í grunnskóla“ nr. 656/2009 m.s.br.
ásamt sérákvæðum sem nálgast má í reglum um skólaakstur í Dalabyggð frá 2021.

Reglur um skólaakstur í Dalabyggð-pdf

Skólaakstur við erfið veðurskilyrði-pdf

Akstursáætlun

Leið 1    Leið 1-Akstursáætlun-pdf

Leið 2  Leið 2-Akstursáætlun-pdf

Leið 3   Leið 3-Akstursáætlun-pdf

Leið 4  Leið 4-Akstursáætlun-pdf

Leið 5  Leið 5-Akstursáætlun-pdf

Leið 6  Leið 6-Aktursáætlun-pdf

Leið 7  Leið 7-Akstursáætlun-pdf

Leið 8  Leið 8-Akstursáætlun-pdf

 

Dagar sem ekki er skólaakstur
Hér má sjá yfirlit daga þegar ekki er skólaakstur. Einnig eru skráðir þeir
dagar þegar vikið er frá hefðbundnum tímasetningum heimferða skv. stundatöflu grunnskólans.   Dagar sem ekki er ekið-pdf

Farþegar / foreldrar / forráðamenn
• Foreldrar/forráðamenn leikskólabarna þurfa að sækja um pláss í skólabíl fyrir 1. maí fyrir næsta skólaár. Umsóknir skal endurnýja á hverju ári.
• Foreldrar leikskólabarna bera ábyrgð á að útvega viðurkennda barnabílstóla fyrir sitt barn sem einungis verður notaður af því.
• Foreldrar leikskólabarna koma með börn sín í skólabílinn og festa þau í sitt sæti.
• Nemendur skuli vera tilbúnir til að fara upp í skólabílinn þegar hann kemur í hlað á morgnana.
• Neysla sælgætis, gosdrykkja, tóbaks og áfengis er óheimil í skólabílnum.
• Sýna ber samferðarfólki kurteisi og tillitssemi í skólabílnum.
• Ef foreldrar hafa áhuga á að senda barn sitt sem „gest“ með skólabíl skal ræða þá fyrirætlan við skólabílstjóra og skólastjóra og fá samþykki þeirra fyrir aukafarþega.
• Bílstjórar eru ekki skyldugir til að taka aukafarangur svo sem hjól nemenda með í skólabílinn.
• Forðast ber að trufla bílstjóra á meðan á akstri stendur.

(Reglur þessar voru samþykktar í fræðslunefnd Dalabyggðar 8. júní 2021 og af sveitarstjórn Dalabyggðar 10. júní 2021)