Vorferð leikskólans

admin

Þriðjudaginn 7. júní verður vorferðalag leikskólans.  Lagt verður af stað upp úr kl. 9:00 og munu Sveinn á Staðarfelli og Kalli í KM vera bílstjórarnir okkar. Leikskólinn tekur með nesti til ferðarinnar.

Farið verður í Daníelslund í Borgarfirðinum og rölt þar um stíga,  nestið borðað  og leikið.  Þaðan er farið í Baulu; borðaður ís og leikið á útisvæðinu.

Mjög mikilvægt er að klæða sig eftir veðri með auka sokka og vettlinga.

Heimkoman er frekar óráðin en líklegt að hún verði  um kl. 13:00 og þá tekur vorhátíð við með grilli.