Útikennsla í maí

admin

Í maí eyddu nemendur 3. bekkjar fimm dögum í útikennslu (hluti af einum var þó vettvangsferð á KM) sem voru að mestu í tengslum við námsefnið “

Komdu og skoðaðu bílinn“.

Nemendur undirbjuggu sig fyrir vettvangsheimsókn á KM (bílaverkstæði) með spurningum. Vel var tekið á móti okkur af einum eiganda KM, honum Kalla. Farið var yfir það sem er m.a. gert á verkstæði og sáu nemendur m.a. sundurrifna vél. Kalli svaraði svo spurningum nemenda samviskusamlega. Spurningarnar snerust flestar að bílum og verkstæðinu t.d. hvað vinna margir á verkstæðinu, hvernig bílar bila oftast, hver er algengasta bilunin, hvernig líður starfsfólkinu þegar það er að vinna, af hverju heitir verkstæðið KM, hver er elsti og yngsti bíllinn sem hafa komið í viðgerð, hvað er gert við marga bíla á dag og hver er besti bílaviðgerðarmaðurinn.

Nemendur gerðu könnun á bílum í þorpinu, gengu um og merktu tegundir, liti, stærðir, númer o.þ.h. Unnin voru síðan súlurit á svæðið við skólann.

Nemendur gerðu aðra könnun en þá voru bara merktir bílar sem voru á ferðinni. Þau völdu sér stað til að vera á og var efsti hluti Miðbrautarinnar valinn, þar sem beygt er af Vesturbrautinni. Þessi könnun var gerð tvisvar en ekki á sama tíma, önnur fljótlega eftir að skóli hófst (8:30) og hin um (10:30). Greinilega mátti sjá að það voru fleiri á ferðinni um hálf ellefu en hálf níu.

Útikennslunni lauk svo með hinni árlegu fuglaskoðun. Að þessu sinni var haldið niður með Laxá og með fjörunni heim í Búðardal. Allir höfðu eigin kíki og nokkrar handbækur voru með. Nesti fengum við hjá Katrínu matráði. . Fuglar sem sáust voru m.a. æðarfugl, spói, tjaldur, mávur og kría. Oft hafa sést fleiri fuglar en engu að síður var þetta hin ágætasta ferð.


Umsjónarkennari


Picture

Merki bílaframleiðenda


Picture

Búið að setja upp súlurit með niðurstöðum


Picture

Gluggað í fuglafræðin