Starfsmann vantar á leikskóla

admin




Vegna forfalla er nú laus 100% staða starfsmanns við umönnun barna í leikskóla Auðarskóla.



Umsækjandi þarf að hafa  hlýtt viðmót, hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum og vera áhugasamur um skólastarf og starfsþróun.



Vinnutími er 8.00 – 16.00 og 09.00 – 17.00 (mismunandi eftir vikum).    Launakjör fara eftir kjarasamningum SDS við Samband íslenskra sveitarfélaga.  Starfið hentar jafnt körlum sem konum. Umsóknarfrestur er til

10. október

.



Upplýsingar um stöðuna veitir Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri í síma 434 1133 eða á netfanginu

eyjolfur@audarskoli.is

Áhugasamir sendi umsókir ásamt ferilskrá rafrænt á sama netfang.