Skemmtilegri árshátíð Auðarskóla í Búðardal lokið

admin





Picture

Í gærkveldi fór fram árshátíð Auðarskóla í Búðardal.  Árshátíðin gekk ágætlega fyrir sig.   Allir nemendur grunnskóladeildarinnar í Búðardal komu fram í atriðum og stóðu sig með mikilli prýði.  Að þessu sinni voru óvenjulega mörg atriði frumsamin af nemendum, sem er skemmtileg viðbót í undirbúningsferlinu.

Foreldar og vandamenn létu sig ekki vanta og fjölmenntu og voru gestir á öllum aldri.  Alls var setið í um 230 sætum.  Eftir leikræna tilburði nemenda voru kaffiveitingar í boði foreldra.  Myndir af atriðum árshátíðarinnar hafa nú verið settar inn í

myndsafn skólans.

Lítið endilega á þær.