Samvinna leik- og grunnskólans

admin

Einu sinni í viku, á fimmtudagsmorgnum milli kl. 10.10 og 11.30 hittast nemendur 1. bekkjar og börn í elsta árgangi leikskólans.  Samvinnan hófst formlega 17. sept. og  var byrjað á því að kynnast skólanum. Við fórum því  saman í skoðunarferð og heimsóttum kennara- og kennslustofur og hittum þar nemendur og kennara.

Í framhaldinu höfum við farið í allskyns skemmtileg verkefni: Spilað samstæðuspil með bókstöfum, æft okkur í hlustun og að teikna, æft nefnihraða (tveir vinna saman: einn flettir spjöldum og annar nefnir hvað hann sér), flokka eftir lit, lögun og formi, leira stafina okkur, klippa og líma og margt fleira.  Þessar stundir eru alltaf jafnskemmtilegar og finnst  börnunum gaman að vinna saman og spreyta sig á fjölbreytilegum verkefnum.

Á föstudagsmorgnum fer 1. bekkur í heimsókn í leikskólann og tekur þátt í sameiginlegri söng- og leikstund.  Kveðja, Anna Sigga og Herdís