Starfsáætlun Auðarskóla í prentvænni útgáfu

admin

Nú hefur mest af því efni sem finnst hér á vefsvæði Auðarskóla verið uppfært,  sett niður í kafla og gert að prentvænu efni.   Um er að ræða starfsáætlun Auðarskóla fyrir 2011 – 2012. Skjalið hentar þeim sem vilja frekar lesa af pappír en af skjá en  einnig  hugsanlega þeim sem finnst betra að lesa efni af skjá skipulega uppsett …

Ný önn í tónlistardeild er að hefjast

admin

Nú er ný önn að hefjast í tónlistardeildinni og við þessi annaskipti gefst tækifæri til að breyta til. Hafi foreldrar áhuga á að auka eða minnka nám nemenda sinna þurfa þeir að hafa samband við tónlistarkennara sem allra fyrst. Einnig ef ekki er sótt eftir frekara námi í vetur. Hafi foreldrar ekki samband fyrir 13. janúar er litið svo á …

Stærðfræði við skólaskil

admin

Út er komin lokaskýrsla þróunarverkefnisins “ Stærðfræði við skólaskil“.   Þróunarverkefnið er að öllu leyti unnið í Auðarskóla og  fjallar um samstarf elsta árgangs leikskólans og yngsta árgangs grunnskólans.  Samstarfið er byggt á stærðfræði að stórum hluta.  Þróunarverkefnið fékk styrk frá Verkefna- og námsleyfasjóði Kennarasambands Íslands.  Verkefnastjórar voru Jóhanna Sigrún Árnadóttir og Guðbjörg Hólm Þorkelsdóttir. Skýrslan í heild sinni hér.

Gleðileg jól

admin

„Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn.“ Fyrir hönd Auðarskóla óska ég nemendum, aðstandendum og öðrum velunnurum skólans gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökkum fyrir mikinn hlýhug og farsæla samvinnu á árinu sem er að líða. Eyjólfur Sturlaugsson

Félag sauðfjárbænda færir leikskóla Auðarskóla gjöf

admin

Sjórn félags Sauðfjárbænda í Dölum mætti í leikskólann síðdegis í dag.  Tilgangur heimsóknarinnar var að færa leikskólanum 40.000 kr. að gjöf.  Í máli Jóns Egils Jóhannssonar kom fram að gjöfin væri dóspeningur frá haustfagnaði þeirra frá því í október.   Skólastjóri tók við gjöfinni og þakkaði  fyrir hana fyrir hönd skólans.

Námskrá leikskóla Auðarskóla

admin

Námskrá leikskólans er nú komin út og er aðgengileg hér á vefsíðu skólans. Námskráin í heild sinni hér.

Uppfærð öryggisáætlun

admin

Öryggisáætlun vegna ófærðar eða óveðurs hefur nú verið uppfærð.  Bætt hefur verið inn  áætlun ef veður versnar mikið á skólatíma og skólaakstur teppist.  Einnig hefur verið aukið við önnur efnisatriði og þau gerð skýrari. Sjá hér.

Stjörnur og lestur í 4. og 5.bekk

admin

Nemendur 4. og 5. bekkjar hafa verið að læra um og kynnast sólkerfinu. Í stofunni hjá þeim hanga núna uppblásnir hnettir í loftnu sem eiga m.a. að auðvelda nemendum að muna röðina á plánetunum frá sólu. Því var alveg kjörið að tengja lestrarátak bekkjarins við þessa hangandi hnetti. Nemendur brugðu því á það ráð, með kennara sínum, að mála litla …

Sjálfsmatsskýrsla 2010 – 2010

admin

Í þessari fyrstu áfangaskýrslu Auðarskóla um sjálfsmat í skólanum er greint frá framkvæmd og niðurstöðum á tveimur þáttum, sem metnir voru skólárið 2010 – 2011. Skýrsla þessi er nokkuð seinna á ferðinni en til stóð samkvæmt áætlun vegna starfsmannaferðar sem farin var í Auðarskóla á starfsdögum í júní 2011. Við það seinkaði úrvinnslu úr gögnum vetrarins. Í skýrslunni er gert …

Kaffihúsakvöld og danssýning

admin

Árlegt kaffihúsakvöld Auðarskóla verður fimmtudaginn 1. desember kl. 19:30 – 21:30.  Boðið verður upp á kakó, smákökur og skemmtiatriði.  Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir 16 ára og eldri. Danssýning Auðarskóla verður föstudaginn 2. desember í Dalabúð og hefst hún kl. 12.00.  Heimakstri verður seinkað og verður kl. 13. Allir hjartanlega velkomnir.