Myndlistasýning

admin Fréttir

Nú stendur yfir myndlistasýning nemenda úr 8. bekk í Leifsbúð.  Nemendur völdu sjálfir verk eftir valinn listamann/konu. Því næst prentuðu þeir út mynd af verkinu, staðsettu myndina á striga og stækkuðu hana. Þeir áttu að ímynda sér hvernig myndin gæti hafa litið út, mála viðbótina og reyna að ná litum og áferð frummyndarinnar eftir bestu getu.   Myndirnar verða til sýnis fram að páskum.