Leikskólakennaranám

admin

Sveitarfélagið Dalabyggð hyggst styðja við bakið á nemendum sem fara í háskólanám í leikskólakennarafræðum.



Um er að ræða margþættan stuðning:

– laun í staðbundnum lotum og æfingakennslu í leikskólum

– eingreiðslur (námsstyrkir) tvisvar á skólaárinu

– aðgangur að tölvukerfum Auðarskóla og Office 365

– aðgangur að vinnu- námsaðstöðu í skóla; þrentun, ljósritun, interneti og fl.



Stefnt er að því að ná saman nokkrum hópi nema sem gæti verið í þessu saman og notið stuðnings hvers annars.



Þeir sem hafa áhuga hafi samband við Eyjólf Sturlaugsson skólastjóra í síma 899 7037 eða á netfangið

eyjolfur @audarskoli.is

.






Umsóknarfrestur í leikskólakennaranám rennur út 5. júní næstkomandi.






Reglur Dalabyggðar um stuðning við leikskólakennaranám