Kaffi og með því – mikilvægt fyrir alla foreldra/forráðamenn

admin Fréttir

Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla verður haldinn í grunnskólanum þriðjudaginn 26. september kl. 17:30.

Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Fráfarandi stjórn gerir grein fyrir starfi síðasta starfsárs og fjárhagslegri stöðu félagsins.
3. Fulltrúar í skólaráði gera grein fyrir starfi síðasta starfsárs.
4. Lagabreytingar.
5. Kosningar.  Stjórnarkjör, og kosning fulltrúa í fræðslunefnd og skólaráð ef þörf er á.
6. Önnur mál.
            Mikilvæg málefni er varða alla foreldra/forráðamenn.

Komin eru nokkur framboð í næstu stjórn en við tökum áfram við framboðum fram að aðalfundi.

Foreldrafélag Auðarskóla er sameiginlegt foreldrafélag fyrir leik- og grunnskóla.

Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn mæti á aðalfund þar sem málefni fundarins varða alla foreldra. Vinsamlegast látið ritara félagsins vita ef þið komist EKKI.

Stjórn foreldrafélags Auðarskóla