Jólaföndursdagurinn

admin

Mánudaginn 7. desember var hinn árlegi jólaföndursdagur í grunnskóladeild Auðarskóla.  Unnið var á hverju stigi fyrir sig og einungis unnið í jólaföndri fram að hádegi.

Elsta stig föndraði gluggaskraut sem hefur raðast í efri gluggana í þeirra stofum og víðar.

Miðstig var að skreyta krukkur, búa til súkkulaðiskálar, origami o.fl.

Yngsta stig skreyttu líka krukkur og perluðu jólamyndir.

Einnig notuðu margir tímann í að skreyta jólakortapokana sína og einhverjir byrjuðu að föndra jólakort.

Skemmtilegur dagur í uppbroti.