Dagskrá á vegum foreldrafélagsins

admin

Nú í vikunni stendur Foreldrafélag Auðarskóla  fyrir tveimur viðburðum fyrir nemendur skólans.


Miðvikudaginn 21.

nóvember verða Brúðuheimar með sýninguna „Pönnukakan hennar Grýlu“.  Sýningin, sem ætluð er 1. – 4. bekk og elstu börnum á leikskóla, er í Dalabúð og hefst kl. 14.00. Sýningunni lýkur fyrir heimakstur nemenda. Foreldrar eru velkomnir á sýninguna.


Fimmtudaginn 22.

nóvember stendur foreldrafélagið fyrir rútuferð í Borgarnes á leiksýninguna “ Litla hryllingsbúðin“.  Leikhúsferðin er ætluð nemendum í 5. – 7. bekk og eru foreldrar beðnir að láta Arnar Eysteinsson vita á netfangið

arnare68@gmail.com

eða í síma 893-9528 fyrir 20. nóvember.  Frítt fyrir börnin. Sjoppa verður á staðnum og gott að taka pening með fyrir þá sem það vilja.