Breytt félagslíf í Auðarskóla

admin Fréttir

Þær breytingar urðu nú í vor að til starfa í Dalabyggð tók íþrótta- og tómstundafulltrúi.  Við þau tímamót færist allt félagslíf sem tengist starfi félagsmiðstöðva af skólanum yfir á hið nýja embætti.  Um er að ræða allt sem viðkemur Samfés og opnu húsi á miðvikudagskvöldum.
Auðarskóli verður engu að síður með félagslíf, en með breyttu sniði. Í vetur verður farið af stað með nokkrar nýungar eins og klúbbastarf og leitað á ný mið í skipulagi á dansleikjum.

Til að byrja með völdu nemendur að stofna til þriggja klúbba sem eru: Lan-klúbbur, Friends-klúbbur og Tónlistarklúbbur.  Klúbbastarfssemin verður fjóra þriðjudaga fram að áramótum og hefast þeir eftir kennslu kl. 15.30.

Þá er ákveðið að slá upp dansleik í skólanum þann 30. október og verður það – Halloween Diskó !

Allar nánari upplýsingar um klúbbana og tímasetningar er að finna á þessari slóð.

Umsjónarmaður með félagslífi nemenda í Auðarskóla  er Elísabet Kristjánsdóttir