Árshátíð grunnskóladeildar í Búðardal

admin

Þann 31. mars næstkomandi verður haldin árshátíð nemenda Auðarskóla í Búðardal.  Árshátíðin verður í Dalabúð og hefst kl. 18.00.   Þennan sama dag verður heimakstri nemenda flýtt um klukkustund og fara skólabílar frá Búðardal kl. 14.00.  Yngri nemendur (1. – 4. bekkur) hefja dagskrána og nauðsynlegt að þeir séu mættir aftur kl. 17.30 í Dalabúð til undirbúnings.

Kaffiveitingar eru að lokinni skemmtun og eru þær eins og áður í boði foreldra.  Foreldrar eru því beðnir að hafa meðferðis bakkelsi en starfsfólk í Dalabúð tekur á móti því frá kl. 17.30.

Miðaverð hefur verið lækkað verulega og er að þessu sinni kr. 600 á mann fyrir 6 ára og eldri.  Nemendur fá frítt.

Það er von nemenda að sem flestir sjái sér fært að mæta og skemmta sér með nemendum á þessari stærstu hátíð skólans.