Árshátíð Auðarskóla

admin





Picture


Ágætu foreldrar

Þann 29. mars næstkomandi verður haldin árshátíð nemenda Auðarskóla í Búðardal. Árshátíðin verður í Dalabúð og hefst kl. 18.00. Áætlað er að dagskrá og kaffiveitingar taki um tvær og hálfa klukkustund. Diskótek verður svo til kl. 23.00 fyrir þá sem vilja.

Þennan sama dag verður heimakstri nemenda flýtt um klukkustund og fara skólabílar frá Búðardal kl. 14.00. Yngri nemendur (1. – 5. bekkur) hefja dagskrána og nauðsynlegt að þeir séu mættir aftur kl. 17.30 í Dalabúð til undirbúnings.

Kaffiveitingar eru að lokinni skemmtun og eru þær eins og áður í boði foreldra. Foreldrar eru því góðfúslega beðnir að hafa meðferðis bakkelsi en starfsfólk í Dalabúð tekur á móti því frá kl. 17.30.  Miðaverð verður það sama og á síðasta ári eða kr. 600 á mann fyrir 6 ára og eldri. Nemendur fá frítt.

Það er von undirritaðs að sem flestir sjái sér fært að mæta og skemmta sér með nemendum á þessari stærstu hátíð skólans.

Með bestu kveðju

Eyjólfur Sturlaugsson


skólastjóri