Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla

admin Fréttir

Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla verður haldinn í grunnskólanum þriðjudaginn 15. september kl. 20:00
Dagskrá:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Fráfarandi stjórn gerir grein fyrir starfi síðasta starfsárs og fjárhagslegri stöðu félagsins
  3. Fulltrúar í skólaráði gera grein fyrir starfi síðasta starfsárs
  4. Lagabreytingar
  5. Kosningar. Stjórnarkjör, og kosning fulltrúa í fræðslunefnd og skólaráð ef þörf er á.
  6. Önnur mál

Foreldrafélag Auðarskóla er sameiginlegt foreldrafélag fyrir leik- og grunnskóla. Foreldrar eru hvattir til að mæta.

Stjórn foreldrafélags Auðarskóla