Á leið í Skólabúðirnar á Reykum

admin

Samkvæmt skóladagatali á Auðarskóli bókaða viku fyrir nemendur í 7. bekk í skólabúðunum að Reykjum í Hrútafirði vikuna 16. – 20. janúar. Nemendur verða það með nemendum samstarfsskólana úr Borgarfirði og Hvalfjarðarsveit. Lögð er áhersla á að allir nemendur fari og njóti samveru við leik og störf. Umsjónarkennari fer með nemendum sínum.


Ferðaáætlun

: Áætlað er að rúta fari á mánudagsmorgni kl. 10:30. Koma að Reykjum er áætluð milli 11:30 og 12:00. Það verður venjuleg kennsla á mánudagsmorgni þar til rútan fer. Brottför frá Reykjum á föstudag er áætluð kl. 11:30 eða eftir hádegismat, þannig að nemendur komist með skólabílum heim.


Dagskrá:

Megináhersla verður lögð á ferðir í fjöru, á byggðasafn, fjármálafræðslu, íþróttir og útiveru. Því þurfa nemendur m.a. að hafa með sér hlýjan útifatnað (hlífðarföt), stígvél, íþróttaföt og sundföt. Þá skiptast nemendur á við störf í borðstofu. Rétt er að benda nemendum á að í skólabúðirnar eru þeir komnir til að læra en þó með nokkuð öðru sniði en í venjulegum skóla. Mætingarskylda er í alla dagskrárliði.


Þátttökugjald:

Þátttökugjald á hvern nemenda skólaárið 2011-2012 er kr. 17.500. Auðarskóli greiðir kostnað fyrir nemendur; þ.e. kostnað við rútu og þátttökugjald. Hinsvegar verður þessa viku innheimt sem áður gjald í mötuneyti Auðarskóla og er gjaldið hugsað sem greiðsla fyrir fæði í skólabúðum.