10. bekkur-Heimsókn í Menntaskóla Borgarfjarðar

Auðarskóli Fréttir

Þriðjudaginn 14. febrúar fór 10. bekkurinn í heimsókn í Menntaskóla Borgarfjarðar.
Nemendur fengu kynningu á námi og kennslu og hittu þeir flesta kennara skólans.
Nemendur á fyrsta ári fylgdu þeim á milli stöðva og loks var þeim boðið í hádegismat.
Dagurinn var skemmtilegur og í tilefni heimsóknar var smellt í eina mynd.
Einn átti líka afmæli þennan daginn!