Skólabyrjun 2020-2021

admin

​​Nú fer að líða undir sumarlok og skólaárið að hefjast hjá okkur í Auðarskóla. Eins og ljóst er orðið byrjun ekki með sama móti og venjulega. Með því erum við að bregðast við þeim tilmælum sem stjórnvöld hafa sett vegna Covid19. Skólasetning verður fyrir nemendur og foreldra í 1. bekkjar mánudaginn 24. ágúst (póstur hefur verið sendur á forráðamenn) en …

Ferðalag í Geitfjársetrið

admin

​Leikskólabörn af Tröllakletti og verðandi 1. bekkingar ásamt starfsfólki leikskólans fóru í ferðalag að Háafelli í Borgarfirði í Geitfjársetrið í gær, fimmtudaginn 20. ágúst. Veðrið var eins og best var á kosið og allir mjög spenntir að fá að fara í rútu. Geiturnar tóku vel á móti okkur eins og staðarhaldirinn hún Jóhanna. Geitur eru einstök dýr, miklir mannvinir og …

Auðarskóli yfir hátíðirnar

admin Fréttir

Í dag, 20. desember eru litlu jólin í grunnskóladeild Auðarskóla.  Þetta er jafnframt síðasti kennsludagur fyrir jólafrí og síðasti dagurinn sem skólabílarnir keyra fyrir frí. Kennsla hefst aftur föstudaginn 3. janúar og þá hefst skólaakstur aftur. Leikskólinn er opin alla virka daga í fríinu en eins og áður hefur verið er hann samt lokaður á aðfangadag og gamlársdag. Við óskum …

Skólasetning grunnskólans

admin Fréttir

Skólasetning Auðarskóla fer fram fimmtudaginn 22. ágúst í Dalabúð og hefst athöfnin klukkan 10:00.Klukkan 10:20 verður kynning fyrir nemendur yngsta stigs, klukkan 10:45 verður kynning fyrir nemendur á miðstigi og klukkan 11:10 fyrir nemendur elsta stigs.  Gert er ráð fyrir að foreldrar grunnskólabarna mæti á skólasetninguna og kynningar þeirra stiga sem þeirra börn eru á. Einnig minnum við á:Eins og í fyrravetur …

Auðarskóli í sumarfrí

admin

Nú er allar deildir Auðarskóla komnar í sumarfrí og var síðasti skóladagur leikskólans föstudaginn 3. júlí. Skrifstofa Auðarskóla opnar aftur miðvikudaginn 5. ágúst, leikskólinn opnar mánudaginn 10. júlí kl. 10 og skólasetning verður mánudaginn 24. ágúst. Nánari tímasetning setningar verður auglýst síðar. Á heimasíðu skólans má finna skóladagatal næsta árs fyrir leik- og grunnskóla. Einnig er þar að finna ýmsar …

Umsókn um tónlistarnám

admin Fréttir

Það hafa komið spurningar um hvar eyðublaðið fyrir tónlistarskólann er. Hér er linkur:http://www.audarskoli.is/siacutemargjaldskraacutereyethubloumleth.html Lengst til hægri á þessari síðu er þetta eyðublað það þriðja talið ofan frá.

Rithöfundar í heimsókn í Auðarskóla

admin Fréttir

Sigrún Elíasdóttir rithöfundur kom í heimsókn í Auðarskóla síðast liðinn mánudag og las fyrir nemendur 3.-7.bekkjar úr nýrri bók sinni „Leitin að vorinu“ sem er sú fyrsta í þríleik. Bókin er fantasía sem fjallar um tvær ólíklegar hetjur sem leita að svarinu við því hvers vegna vorið kemur ekki í Norðurheimi. Á leið þeirra verða að sjálfsögðu skrímsli og forynjur …

Styrkur til tónlistardeildar Auðarskóla

admin Fréttir

Á aðalfundi Stéttarfélags Vesturlands, sem haldinn var þann 30. apríl síðast liðinn, var samþykkt að stéttarfélagið styrkti tónlistarkennslu á félagssvæðinu með því að leggja lið Tónlistardeild Auðarskóla. Styrkurinn til Tónlistardeildar Auðarskóla hljóðar upp á 200.000 krónur og er ætlaður til kaupa á hljóðfærum. Við þökkum Stéttarfélagi Vesturlands kærlega fyrir þennan styrk.

Útskrift leikskólans júní 2020

admin

​Þriðjudaginn 2. júní 2020 útskrifuðust 8 börn úr leikskólanum. Athöfnin fór fram í Dalabúð. Við útskriftina var börnunum afhent útskriftarskjöl en einnig gáfu Stína og Jóhanna þeim blóm og gjöf frá leikskólanum. Haldin var ræða þeim til heiðurs þar sem stiklað var á stóru um leikskólagöngu þeirra  og þeim færðar óskir um bjarta framtíð og farsældar á nýjum vettvangi. Myndasýning …