Skipulagsdagur 4. nóvember

admin

Skóli fellur niður miðvikudaginn 4. nóvember næstkomandi bæði í grunnskóla- og tónlistarskóladeild vegna skipulags á skólahaldi samkvæmt reglugerð sem gefin var út af ráðherra. Stjórnendur

Hundraðdagahátíð!

admin Fréttir

​Skrifaðar voru tölurnar frá 1 – 100 og hundrað algengustu orðin í íslensku. Að vinnu lokinni var haldin hátíð þar sem boðið var upp á pizzu og djús. Deginum lauk svo með frjálsum leik. Umsjónarkennarar á yngsta stigi. Föstudaginn 31. janúarhélt yngsta stigið ​hundraðdagahátíð. 

Vetrarfrí í Auðarskóla

admin

Auðarskóli, grunnskóla- og tónlistardeild verður í vetrarfíi frá og með föstudeginum 30. október til og með þriðjudeginum 3. nóvember. Lengd viðvera fellur líka niður þessa daga og engir skólabílar verði í akstri. Skólastarf hefst svo miðvikudaginn 3. nóvember samkvæmt stundatöflu. Þorkell Cýrusson aðstoðarskólastjóri

Tónfundir í nóvember

admin Fréttir

Tónfundir fóru fram í tónlistardeildinni þriðjudaginn 12. og fimmtudaginn 14. nóvember. Voru þeir haldnir á sviðinu í Dalabúð og sú tilhögun tókst með miklum ágætum. Nemendur stóðu sig frábærlega og er gaman að sjá hvað þeim fer mikið fram.  Með nýfengnu og spennandi samstarfi tónlistarkennaranna verður nú áhersla á meira samspil og megum við eiga von á að sjá fleiri …

Ólag á símkerfi

admin

Eitthvert ólag hefur verið á beinum síma ritara í dag, 430-4757. Það er allt komið í lag og hægt er að hringja núna án vandræða!

Tónfundir

admin

´Tónfundir sem áttu að vera 12. og 14. október falla niður í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu.

Sjálfsmatsskýrsla-Starfsáætlun

admin

Starfáætlun Auðarskóla fyrir skólaárið 2020-2021 er komin inn á heimasíðu skólans. Sjötta skýrsla um sjálfsmat Auðarskóla er einnig komin inn. Í skýrslunni er gert grein fyrir tveimur matsþáttum; Líðan, þarfir, starfsandi og samstarf og viðmót, menning og ytri tengsl. Auk þeirra er að finna umbóta- og matsáætlun fyrir skólaárið og nýja langtímaáætlun innra mats sem gildir til skólaársins 2025-2026. Skýrslurnar …

Skipulagsdagur

admin

Þriðjudaginn 29. september verður skipulagsdagur í grunnskóla- og tónlistarskóladeild Auðarskóla. Öll kennsla fellur niður þann dag eins verður ekki lengd viðvera heldur. Skólabílar munu því ekki aka þann dag. Þorkell Cýrusson aðstoðarskólastjóri

Upplýsingabæklingur Auðarskóla 2020-2021

admin

Sælir ágætu foreldrar/forráðamenn Almennur upplýsingabæklingur Auðarskóla fyrir skólaárið 2020-2021 er nú tilbúinn og verður sendur heim með nemendum á morgun, miðvikudaginn 26. ágúst. Í honum er að finna helstu upplýsingar um starfið í vetur, s.s. stuðningskerfi skólans, hvernig á að senda tilkynningar til okkar og önnur ,,praktísk“ atriði. Ég læt fylgja með þessari frétt slóð inn á bæklinginn. Þorkell Cýrusson …