Viðbrögð við slysum nemenda

1. Ef um augljóslega lítilsháttar meiðsl er að ræða þá á að búa um það og/eða að leyfa nemandanum að jafna sig í skólanum.          Viðbrögð við slysum-pdf

2. Ef um er að ræða meiðsl sem erfitt er að meta hvort það er lítilsháttar eða alvarlegt þá hringir viðkomandi starfsmaður í foreldra/forráðamenn og lýsir atvikinu og meiðslum eins ítarlega og hægt er. Ákvörðun um framhaldið er tekin sameiginlega af starfsmanni og foreldrum.

3. Ef um er að ræða bak- eða höfuðáverka er ávallt haft samband við foreldra og farið með barnið á heilsugæslustöðina til nánari athugunar og aðhlynningar.

4. Ef um er að ræða alvarlegri slys þá gildir eftirfarandi áætlun:

a. Sá sem kemur á vettvang metur ástand og kallar á hjálp eftir aðstæðum.

b. Sóttur sjúkrakassi – hringt á sjúkrabíl.

c. Skólastjóri eða umsjónarkennari tilkynnir foreldrum.

d. Umsjónarkennari tilkynnir samnemendum um slysið.

5. Öll meiðsli og slys sem verða á nemendum eru skráð á slysaskráningarblöð.

6. Ef slys er vegna þess að aðstæður bjóða upp á slíkt er öryggistrúnaðarmanni gert viðvart.