Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla

admin

Á síðasta aðalfundi foreldrafélags Auðarskóla var ákveðið að breyta tímasetningu aðalfundanna og hafa þá í maí.   Fráfarandi stjórn klárar samt skólaárið en þá getur svo ný stjórn tekið við strax í upphafi næsta skólaárs, eða frá 1. ágúst. Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla verður því haldinn í grunnskólanum fimmtudaginn 23. maí kl. 17:30. … Dagskrá: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara. 2. Fráfarandi …

Smiðjuhelgi

admin Fréttir

Nemendur elsta stigs tóku þátt í smiðjuhelgi dagana 5. – 6. október sem haldin var á Kleppjárnsreykjum. Nemendur völdu sér smiðju og í boði var: björgunarsveit förðun dans leiklist mótórhjóla/smávélaviðgerðir sundknattleikur sirkus Auk okkar nemanda tóku þátt nemendur frá Grunnskóla Borgarfjarðar, Reykhólaskóla og Laugagerðisskóla. Nemendur voru almennt ánægðir með þessa ferð.

Ný stjórn foreldrafélags Auðarskóla

admin Fréttir

Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla var haldinn þriðjudaginn 26. september 2017. Á fundinum voru hinir hefðbundnu liðir aðalfundar.  Gert grein fyrir störfum síðasta starfsárs og ársreikningar lagðir fram.  Skólastjóri kom og gerði grein fyrir störfum skólaráðs. Kosningar fóru fram og var sama fólk kjörið áfram í skólaráð og fræðslunefnd. Ný stjórn foreldrafélagsins var kjörin eftirfarandi:Formaður: Jón Egill JónssonGjaldkeri: Björt ÞorleifsdóttirRitari: Jónína Kristín GuðmundsdóttirMeðstjórnandi: Guðrún Esther …

Vorhátíð og skólaslit Auðarskóla – 30. maí 2017

admin Fréttir

Hin árlega vorhátíð grunnskóladeildar Auðarskóla verður haldin hátíðleg á þriðjudaginn 30. maí 2017.Dagskráin er frá 8:30 til 12:00 en þá tekur við grillveilsa foreldrafélagsins.  Skólaslitin eru svo eins og venjulega klukkan 17:00 sama dag.Hafa ber í huga að hluti dagskrár er úti og því þarf að klæða sig eftir veðri.     08:30 – 09:50    Yngsta stig – „blautdagskrá„         …

Upplestrarhátíðin á Vesturlandi

admin Fréttir

Auðarskóli átti fulltrúa á Upplestrarhátíðinni á Vesturlandi sem fram fór 10. apríl síðast liðinn.  Hér heima hafði áður farið fram undankeppni þar sem fulltrúar okkar voru valdir.  Fulltrúar okkar voru þær Sólbjört Tinna og Helga Rún og varamaður Sigurvin Þórður.  Keppnin fer þannig fram að keppendur lesa í þremur umferðum einn texta, og tvö ljóð.  Að þessu sinni var textinn …