Myndmennt í Samkaup

admin

Kæru nemendur og foreldrar. Nemendur 8.bekkjar, ásamt þeim Lily og Martin, hafa fræðst lítillega um Tryggva Magnússon teiknara og skoðað myndir eftir hann. Þau unnu blýantsteikningar af jólasveinum/jólakettinum og afraksturinn má sjá í Samkaupum. Myndirnar fá að hanga þar yfir hátíðarnar. Bestu kveðjur, María.

Jólatónleikum frestað

admin

Jólatónleikum tónlistardeildarinnar, sem vera áttu kl. 17.00 í dag, verður frestað vegna veðurs til 14.01.2016. Skólastjóri

Vefsíða Auðarskóla

admin

Vefsíða Auðarskóla er greinilega  mikið notuð.  Samkvæmt yfirliti af vefsvæðinu, sem mælir umferð og heimsóknir á síðuna,  eru daglegar flettingar á síðunni að rokka til og frá á bilinu 200 – 800.  Meðaltalið síðastliðinn mánuð er því um 400 flettingar á dag sem gera 12.000 flettingar á mánuði.  Miðað við þennan fjölda og niðurstöður úr innra mati skólans þar sem …

Jólaföndursdagurinn

admin

Mánudaginn 7. desember var hinn árlegi jólaföndursdagur í grunnskóladeild Auðarskóla.  Unnið var á hverju stigi fyrir sig og einungis unnið í jólaföndri fram að hádegi. Elsta stig föndraði gluggaskraut sem hefur raðast í efri gluggana í þeirra stofum og víðar. Miðstig var að skreyta krukkur, búa til súkkulaðiskálar, origami o.fl. Yngsta stig skreyttu líka krukkur og perluðu jólamyndir. Einnig notuðu …

Piparkökuskreyting foreldrafélagsins

admin

Á mánudaginn 14. desember stendur foreldrafélagið fyrir hinni árlegu piparkökuskreytingu. Við byrjum klukkan 17:00 í kaffisalnum í Dalabúð. Foreldrafélagið útvegar piparkökurnar og glassúr. Reynum að redda sem flestum litum í glassúrinn en það er velkomið að koma með fleiri liti. Vinsamlegast komið með ílát til að taka kökurnar með heim í. ​ Kveðja Stjórn foreldrafélags Auðarskóla

Vegna veðurs

admin

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi fyrir allt landið vegna óvenju slæmrar veðurspár. Vegagerðin gerir ráð fyrir að loka veginum um Bröttubrekku kl. 16 í dag og um Svínadal kl. 17.  Gera má ráð fyrir að lokað verði til kl. 15 á morgun þriðjudag. Íbúar Dalabyggðar eru hvattir til þess að gæta að lausamunum, fylgjast með útvarpsfréttum  og halda sig heima …

Tónfundir

admin Fréttir

Tónfundir í tónlistardeild Auðarskóla verða dagana 25. – 26. mars.  Þriðjudaginn 25. mars verða 1. – 4. bekkur í tónlistarskólanum frá kl. 14.30 – 15.10 og þann 26. mars verða 5. – 10. bekkur í efra rými grunnskólans frá kl. 14.30 – 15.10.  Allir eru velkomnir á tónfundina.

Af leikskólamálum

admin

Inntaka 12 mánaða barna á leikskólann hófst í byrjun október og hefur gengið vel.  Framkvæmdir á leikskólalóðinni vegna þessa eru komnar á góðan rekspöl en þeim er ekki lokið.  Þá eru ýmsar breytingar á skipulagi innra starfsins að taka á sig mynd í kjölfar þessara breytinga.  Búðast má við að það taki leikskólann nokkra mánuði í viðbót að aðlaga starfsemi …

Hvar er Stekkjarstaur?

admin

Á mánudaginn 30. nóvember stendur foreldrafélag Auðarskóla fyrir jólaleiksýningu fyrir yngsta stig grunnskólans og leikskólabörnin. Leiksýningin “ Hvar er Stekkjarstaur ? “ verður sýnd í Dalabúð klukkan 14:00.  Foreldrar eru velkomnir að koma og horfa með börnunum. “ Það er kominn 12. desember, en jólasveinninn Stekkjarstaur kemur ekki til byggða. Þegar Halla fer að athuga hvernig á því standi kemst …