Annaskipti

admin

Mánudaginn 14. nóvember er starfsdagur og þann 15. nóvember eru foreldraviðtöl í grunnskóladeild skólans. Þessa tvo daga er ekki kennsla og ekki skólaakstur. Ekki er heldur kennsla í tónlistardeild skólans en leikskólinn er opinn eins og venjulega. Foreldrar mæta til viðtals hjá umsjónarkennurum með börnum sínum en aðrir kennarar og skólastjórnendur  verða einnig til viðtals.   Tónlistarkennarar vilja einnig gjarnan …

Niðurstaða úr samræmdum könnunarprófum

admin

10. bekkur Íslenska Meðaltal úr prófi   5,39      Meðaltal raðeinkunnar  32.07     Samræmd grunnskólaeinkunn   23,21 Enska 4,82                                                 20,43                                   …

Nýtt hljóðkerfi í alrými

admin

Á dögunum kom nýtt hljóðkerfi í alrými skólans, sem jafnframt er félagsrými nemenda.  Kerfið verður notað á uppákomum á vegum skólans; t.d. tónleikum og skemmtunum.  Einnig nýtist kerfið í hléum eldri nemenda í skólanum til að hlusta á tónlist.  Kerfið kemur einnig til með að verða nýtt í félagsstarfi skólans, t.d. þegar haldin eru diskótek. Á myndinni sjást tæknimenn nemendafélagsins …

Grasker

admin

Nemendur 6. og 7. bekkjar hittast alltaf  fyrstu þrjá tímana á föstudögum og vinna ýmis verkefni saman og er það hluti þróunarverkefnis, sem fellst m.a. í því að auka blöndun nemenda. Síðastliðinn föstudag voru nemendurnir önnum kafnir við að skera út andlit á grasker því Hrekkjavakan var 31. október. Hrekkjavaka er hátíðisdagur ættaður úr keltneskri trú . Vaninn er að …

Myndir af tónfundum

admin

Nú eru myndir frá tónfundunum á þriðjudag og miðvikudag komnar inn á myndasvæði skólans.   Einnig er þar nú að finna myndbandsupptöku af seinni fundinum, sem haldinn var inni í skólanum. Tónfundirnir heppnuðust vel og komu allmargir foreldrar í heimsókn þessa daga.

Opið hús í leikskólanum

admin

Föstudaginn 28. okt. ætlum við að hafa opið hús hér í leikskólanum, milli kl. 9 og 11, og aftur kl.13 og 15. Það eru allir velkomnir til okkar hvort sem þeir hafa tengsl við barn í leikskólanum eða ekki.  Hér er líf og fjör, og okkur finnst alltaf gaman að fá góða gesti. Kveðja Börn og starfsfólk

Með þakklæti fyrir gjafirnar

admin

Við í leikskólanum erum svo heppin að okkur hafa áskotnast góðar gjafir að undanförnu. Í haust var okkur gefið fullt af Barbídóti og fleiru sem kemur sér vel hjá okkur. Í október kom Haukur Atli með fullan poka af grímubúningum með sér og gaf leikskólanum. Dagný Sara kom einnig með gjöf til okkar, hún kom með fullt af garni og …

Tónfundir í tónlistardeild

admin

Framundan eru fyrstu tónfundir tónlistardeildarinnar þetta starfsárið.  Þann 25. október næstkomandi  verður tónfundur út í tónlistardeild fyrir yngri nemendur í tónlistarnámi.  Daginn eftir verður tónfundur í efra rýminu í grunnskólanum og þar koma fram eldri nemendur í námi  og hljómsveitir. Tónfundirnir  hefjast báðir kl. 11.40.  Foreldrar sem aðrir aðstandendur  eru velkomnir á fundina.

Ungmennabúðirnar á Laugum

admin

Vikuna 17.-21. október munu nemendur 9. bekkjar Auðarskóla dvelja á Laugum, Sælingsdal ásamt umsjónarkennara. Samstarfsskólanir á Vesturlandi eru á sama tíma.  Upplýsingar frá skólabúðunum hafa verið sendar heim. Auðarskóli greiðir allan kostnað við ferðina en foreldrar greiða þó fæðiskostnað eins og nemandi væri í Auðarskóla þessa daga. Nemendur mæta í skólann samkvæmt stundaskrá mánudaginn 17. október.  Brottför verður 11:50 á mánudag og heimkoma í Búðardal …

Út og inn um gluggann

admin

Ákveðið var að steypa 1.-5. bekk saman í síðustu kennslustund föstudaginn 7. október.  Hópurinn  sameinaðist m.a.  í því að rifja upp þann  gamla leik “ Inn og út um gluggann“.