Litlu-jól leikskólans 15. desember

Litlu-jól leikskólans verða haldin fimmtudaginn 15. desember og hefjast kl.10.

ATh! Stundin er einungis fyrir börn og starfsmenn og jólasveina.

Venjan er að klæðast sparifötum á litlu-jólunum og best væri ef börnin komi í sparifötum í leikskólann að morgni

en skipti svo um föt að litlu-jólum loknum, ef vilji er fyrir því.

Í hádeginu verður svo snæddur hátíðarmatur; Kalkúnn með tilheyrandi meðlæti og ís í eftirrétt.

Dagurinn verður ólíkur öðrum dögum, mikið fjör og nóg að gera.

Kær kveðja frá starfsfólki leikskólans.

The event is finished.

Date

15. desember, 2022
Expired!

Time

All Day