Nemenda- og foreldrasamtöl

Nemendasamtöl

Nemendasamtöl eru formlega tvisvar á hverju skólaári, en geta orðið fleiri telji umsjónarkennari og foreldrar þörf á slíku. Samtölin, sem fara fram í einrúmi eru tekin skömmu fyrir foreldrasamtölin og eru að jafnaði 10 – 20 mínútur að lengd.

Í nemendasamtölum er rætt um líðan nemenda og námsframvindu eða annað sem nemendum liggur á hjarta. Reynt er að ígrunda námslega stöðu og ýta undir námsvitund nemanda. Farið er yfir hvernig gangi í námi og hvernig hugsanlega best sé að taka á náminu næstu mánuðina. Stuðst er við gátlista um nemendasamtöl.

Megintilgangur nemendasamtala í Auðarskóla er:

  • Að skapa jákvæðari tengsl milli kennara og nemanda.
  • Að styrkja námsvitund og sjálfstæði nemenda.
  • Að stuðla að aukinni ábyrgð nemenda.
  • Að auka líkur þess að kennari komist að því hvað amar að ef nemanda líður ekki vel í skólanum.
  • Að fjölga tækifærum kennara til að sýna nemenda enn frekar að hann hafi áhuga á þeim og beri umhyggju fyrir námi þeirra og líðan.
  • Að auka kynni milli nemanda og kennara.

Sjá nánar gátlista fyrir nemendasamtöl hér að neðan:

Nemendasamtöl-Gátlisti

 

Foreldrasamtöl

Foreldrasamtöl eru tvisvar á ári og fara þau fram ásamt barni og umsjónarkennara.  Engin sérstök tímalengd er á samtölunum en þau geta verið frá 20 mínútum upp í klukkustund eftir efni og aðstæðum.

Foreldrasamtölin eru mikilvægur hlekkur í leiðsagnarmati og þar fer fram umræða um námsframvindu, líðan nemanda og samvinnu heimilis og skóla.  Leitast er við að ræða námsreynslu nemandans í heild sinni og að í umræðum sé nemandinn sjálfur virkur í viðtalinu.

Eftirfarandi viðmið hafa verið sett fyrir foreldrasamtölin:

  1. Umsjónarkennarar boða foreldra í samtöl tvisvar yfir skólaárið að lágmarki. Fyrra samtal skal fara fram fyrir 20. nóvember ár hvert og það síðara fyrir 20. mars.
  2. Samtölin fara fram í götum kennara, sem skilgreind eru innan 9, 14 tímans og flokkast þar undir þáttinn; foreldrasamskipti. Ef ekki er hægt að nýta göt þá fara samtöl fram fyrir eða eftir skilgreindan vinnutíma og greiðist þá yfirvinna fyrir.
  3. Foreldrasamtölin fara fram í samtalsherbergi eða heimastofu nemenda. Bókanir á samtalsherbergi verða á skrifstofu. (Listi hangir uppi á kennarastofu).
  4. Boðun foreldra í foreldrasamtal skal vera með minnst 15 daga fyrirvara. Skal notast við skráningu á neti þannig að foreldrar geti valið sér tíma. Skólinn sýnir sveigjanleika til  að auðvela foreldrum að komast í samtölin.
  5. Umsjónarkennarar gera öðrum kennurum viðvart um foreldrasamtöl hjá börnunum og skulu þeir koma mats- og stöðuupplýsingum til umsjónarkennarans fyrir viðtalið.  Foreldrar eiga að geta fengi upplýsingar um námsframvindu á öllum námssviðum.
  6. Í samtali er farið yfir með foreldrum hvernig gengið hefur að ná settum náms- og hæfnimarkmiðum. Einnig rætt um líðan og lykilhæfni. Hugað er að nýjum markmiðum og leiðum í kjölfar mats á stöðu. Sjá gátlista fyrir foreldrasamtöl.
  7. Nemendur mega gjarnan sjálfir hafa fyrirfram ákveðið hlutverk í samtölunum.  T.d. að sýna valin verkefni eða safnmöppu.
  8. Engin sérstök einkunnaskjöl eru afhent í samtölum. Foreldrar eiga eftir viðtölin að hafa allar upplýsingar um námslega og félagslega stöðu barns síns.
  9.  Á skólaslitum að vori fá nemendur í hendur einkunnaskjal með kvörðum skólans þar sem námsárangur ársins fyrir hvert námssvið hefur verið dreginn saman.

Sjá nánar gátlista fyrir foreldrasamtöl hér að neðan:

Foreldrasamtöl-Gátlisti