Almennt um skólaakstur Auðarskóla
Skólabílar skulu leggja í fyrsta lagi af stað frá skólanum:
Mánudaga: Kl. 14.25 (Skóla lýkur 14.20)
Þriðjudaga til fimmtudaga: Kl. 15.15 (Skóla lýkur kl. 15.10)
Föstudaga: Kl. 12.35 (Skóla lýkur kl. 12.30)
Skólabílar skulu koma í Auðarskóla í fyrsta lagi kl. 08.15 að morgni hvers skóladags.
Veður og ófærð geta raskað tímasetningum.
Á allar leiðir eiga að vera skráðir varabílstjórar og getur því breyst frá degi til dags yfir skólaárið.
Mikilvægt er að bílstjórum sé tilkynnt ef breytingar verða á ferðum nemenda.
Skólinn þarf einnig að fá upplýsingar um það ef nemandi sem alla jafna fer með skólabíl á ekki að fara með bílnum þann daginn.
Skólabílstjórar skólaárið 2023 -2024
Leið 1: Guðbjörn Guðmundsson hs 434-1258 gsm 894-0058
Leið 2: Jón Egilsson hs 434-1349 gsm 897-1349
Leið 3: Ekur ekki árið 2023-2024
Leið 4: Þröstur Leó Þórðarson hs 434-1315 gsm 845-7042
Leið 5: María Hrönn Kristjánsdóttir hs 434-1350 gsm 849-1858
Leið 6: Sigurður Hrafn Jökulsson hs 434-1350 gsm 661-0434
Leið 7: Þórður Svavarsson hs 434-1315 gsm 896-1315
Leið 8: Sigmundur H. Sigmundsson gsm 894-4802
Um skólaakstur í Dalabyggð gilda „Reglur um skólaakstur í grunnskóla“ nr. 656/2009 m.s.br.
ásamt sérákvæðum sem nálgast má í reglum um skólaakstur í Dalabyggð frá 2021.
Reglur Dalabyggðar-Skólaakstur-Breytt 20. júlí 2023
Skólaakstur við erfið veðurskilyrði-pdf
Hér má sjá yfirlit daga þegar ekki er skólaakstur: Dagar sem skólabílar aka ekki-2023-2024-Pdf
Einnig eru skráðir þeir dagar þegar vikið er frá hefðbundnum tímasetningum heimferða skv. stundatöflu grunnskólans.
Farþegar / foreldrar / forráðamenn
• Foreldrar/forráðamenn leikskólabarna þurfa að sækja um pláss í skólabíl fyrir 1. maí fyrir næsta skólaár. Umsóknir skal endurnýja á hverju ári.
• Foreldrar leikskólabarna bera ábyrgð á að útvega viðurkennda barnabílstóla fyrir sitt barn sem einungis verður notaður af því.
• Foreldrar leikskólabarna koma með börn sín í skólabílinn og festa þau í sitt sæti.
• Nemendur skuli vera tilbúnir til að fara upp í skólabílinn þegar hann kemur í hlað á morgnana.
• Neysla sælgætis, gosdrykkja, tóbaks og áfengis er óheimil í skólabílnum.
• Sýna ber samferðarfólki kurteisi og tillitssemi í skólabílnum.
• Ef foreldrar hafa áhuga á að senda barn sitt sem „gest“ með skólabíl skal ræða þá fyrirætlan við skólabílstjóra og skólastjóra og fá samþykki þeirra fyrir aukafarþega.
• Bílstjórar eru ekki skyldugir til að taka aukafarangur svo sem hjól nemenda með í skólabílinn.
• Forðast ber að trufla bílstjóra á meðan á akstri stendur.
(Reglur þessar voru samþykktar í fræðslunefnd Dalabyggðar 8. júní 2021 og af sveitarstjórn Dalabyggðar 10. júní 2021)