Að útskrifast fyrr

– Að útskrifast úr Auðarskóla áður en 10. námsári er lokið –

Verklagsreglur vegna útskriftar nemanda úr grunnskóla

Í Auðarskóla geta duglegir og/eða bráðgerir nemendur útskrifast í lok 9. bekkjar og um áramót í 10. bekk. Forsenda slíkrar útskriftar er að nemendur hyggist fara í framhaldsnám í kjölfarið.

Til að útskrifast úr Auðarskóla áður en 10 ára skyldunámi er lokið, þarf nemandi að uppfylla námskröfur grunnskóla í samræmi við lokamarkmið aðalnámskrár. Eftirfarandi verklagi skal fylgt þegar til stendur að nemandi útskrifist áður en 10. bekk lýkur:

  • Foreldrar sækja um það til skólastjóra að barn þeirra útskrifist fyrr en hefðbundið námsfyrirkomulag gerir ráð fyrir á sérstöku eyðublaði. Ef barn ætlar að útskrifast í 9. bekk þarf umsókn að liggja fyrir í desember það skólaár. Ef barn ætlar að útskrifast í desember þarf umsókn að liggja fyrir í upphafi skólaárs.
  • Námsefni 10.bekkjar skal lagt til grundvallar í námi barna sem ætla að útskrifast fyrr, en tekið tillit til þess að nemendur lesa hluta þess utanskóla.
  • Standast verður eftirfarandi námsgreinar með góðum eða mjög góðum árangri: Íslensku, stærðfræði, ensku, dönsku, náttúrufræði og samfélagsfræði.
  • Nemandi skal ná að lágmarki einkunninni 8,5 í íslensku, stærðfræði og ensku á sérstökum “lokaprófum” sem fram fara útskriftarmánuðinn og hafi náð í námsmati vetrarins minnst 7,5 í meðaleinkunn í hinum þremur greinunum.
  • Nemandi þarf að sýna sjálfstæð vinnubrögð og mikla hæfni í að axla ábyrgð á eigin námi.
  • Nemandi skal hafa lokið 10. bekkjar sundprófi.
  • Ástundun og frammistaða í öðrum námsgreinum skal vera góð.
  • Nemanda stendur til boða félagsþroskamat hjá sálfræðingi skólans, óski forráðamenn þess. Skólastjóri getur einnig gert það að forsendu útskriftar að slíkt mat fari fram.
  • Nemandi þarf að fara í viðtal hjá námsráðgjafa og fá þar náms- og starfsráðgjöf.
Verklagsreglur við útskriftar nemanda í einni eða fleiri námsgreinum

Nemendur geta útskrifast í einni eða fleiri bóklegri námsgrein áður en 10. bekk er lokið. Í framhaldinu geta þeir stundað nám í framhaldsdeild Menntaskólans í Borgarfirði, sem staðsett er í Búðardal, samhliða námi sínu í Auðarskóla. Nemendur geta einnig sótt fjarnám í öðrum menntastofnunum. Eftirfarandi verklagi skal fylgt við útskrift nemanda í einstakri námsgrein:

  • Alla jafna útskrifast nemandi, sem hyggur á framhaldsnám, úr námsgrein í lok 9.bekkjar eða um áramót í 10. bekk. Nemandi getur lokið öllu námsefni í námsgrein fyrr en þá án þess að útskrifast formlega.
  • Foreldrar skulu sækja um það formlega með umsóknarblaði minnst tveimur mánuðum fyrir útskrift að óskað sé eftir útskrift barnsins í einni eða fleiri námsgrein.
  • Nemandi þarf að ljúka áætluðu námsefni 10. bekkjar og ná öllum námsmarkmiðum námsgreinarinnar samkvæmt námskrá.
  • Nemandi þarf að hafa einkunn upp á 8,5 að lágmarki á vitnisburðarblaði sínu, hafa sýnt góða ástundun og það að getað axlað ábyrgð á námi sínu.
  • Skólastjóri gefur út sérstakt skírteini þar sem nemandi notar við innritun sína í framhaldsskóla.
  • Sæki nemandi framhaldsnám í lokinni námsgrein fær hann leyfi í þeim tímum í grunnskólanum, sem hann þarf að sækja tíma í framhaldsdeild Menntaskóla Borgarfjarðar. Nemandinn sér sjálfur um að koma sér á milli húsa. Hitti þannig á að tímar í framhaldsdeild séu á nákvæmlega sama tíma og einhver námsgrein í grunnskólanum, þannig að nemandi komist alls ekkert í hana, skal hann að taka hana utan skóla eins og kostur er.
  • Í eyðum námsgreinarinnar í grunnskólanum skal viðkomandi nemandi nota tímann til að vinna í framhaldsnámi sínu eða vinna upp það sem tapast hefur vegna tímasóknar í framhaldsnámi.
Umsóknareyðublað: Eyðublað um að útskrifast fyrr