Vinnustöðvun 21.maí

admin Fréttir

Félag grunnskólakennara(FG) hefur boðað vinnustöðvun miðvikudaginn 21. maí næstkomandi hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma.  Ef til boðaðar vinnustöðvunar kemur fellur skólaakstur og öll kennsla í grunnskóladeild niður þann daginn.   Skrifstofa skólans verður opin.

Tónlistarkennarar eru við kennslu þennan dag og leikskólinn starfar eins og venjulega nema að skólaakstur er ekki í boði fyrir leikskólabörnin.

Þann 22. maí hefst kennsla og skólaakstur svo að nýju samkvæmt stundarskrá, hafi komið til áðurnefndar vinnustöðvunar.