Umræðufundur fyrir foreldra grunnskólabarna

admin Fréttir

Á fimmtudaginn 8. Febrúar 2018, klukkan 20:00, stendur foreldrafélag Auðarskóla fyrir umræðufundi fyrir foreldra grunnskólabarna.

Þetta er í þriðja skiptið sem foreldrafélagið stendur fyrir svona fundi og hefur fólk verið ánægt með fyrirkomulag þeirra.  Á fundinum er rætt um skipulag skólastarfsins, bæði um það sem vel er gert og einnig það sem hugsanlega mætti betur fara.

Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn, fyrir hádegi þann 8. febrúar.  Lágmark 15 manns verða að skrá sig til að fundurinn verði haldinn.

Fundurinn verður haldinn í efri byggingu grunnskólans.  Skráningar hjá Jónínu á jonina@audarskoli.is eða á facebook.

Kaffi, kakó og kex í boði.