Stóra upplestrarkeppnin í Auðarskóla

admin





Picture

Stóra upplestrarkeppnin í Auðarskóla fór fram í dag.  Nemendur í 7. bekk skólans kepptu um þátttökurétt í lokakeppni samstarfsskólanna á Vesturlandi.

Allir nemendur bekkjarins kepptu í tveimur umferðum.  Fyrst lásu þeir kafla úr sögu og svo sjálfvalið ljóð. Allir þátttakendur stóðu sig vel og var keppnin jöfn og spennandi.

Að lokum völdu dómarar Guðmund Þorgrímsson í fyrsta sæti, Tómas  Andra Jörgensson í annað sæti og Írisi Brynjólfsdóttur í þriðja sæti.

Dómarar keppninnar voru Björn Stefánsson, Þrúður Kristjánsdóttir og Freyja Ólafsdóttir.

Á myndinni eru sigurvegarar keppninnar.