Stærðfræðikeppnin 2013

admin

Þriðjudaginn 12. mars tóku fimm nemendur úr Auðarkóla þátt í stærðfræðikeppni fyrir nemendur á unglingastigi, sem Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi stendur fyrir á hverju ári. Nokkrir nemendur tóku þátt í forvali Auðarskóla fyrir keppnina og smávegis æfingar fóru fram í skólanum.

Nemendur frá níu skólum á Vesturlandi tóku þátt í keppninni.  Um 4% keppenda komu úr Auðarskóla og voru þau sjálfum sér og skólanum til sóma.

Niðurstöður fá nemendur í pósti en verðlaunaafhending er í FVA

laugardaginn 6. apríl kl 13:00.

Hér fyrir neðan eru  hressir keppendur á leið á Akranes.