Skýrsla næringarfræðings

admin

Ragnheiður Ásta Guðnadóttir næringarfræðingur hjá Næringarsetrinu hefur lokið úttekt á matseðlum hjá mötuneyti Auðarskóla í Búðardal.  Úttektin er nú komin út í skýrslu sem er aðgengileg hér á vefsíðu skólans undir hlekknum „útgáfa“.  Úttektin var að þessu sinni aðeins gerð í Búðardal og nær ekki yfir morgunmatinn.

Í heild sinni er niðurstaðan góð.  Mötuneytið stenst í flestu þau viðmið sem Lýðheilsustofnun setur varðandi skólamötuneyti og mötuneytið fylgir þeim markmiðum sem Auðarskóli hefur sett sér.  Fjölbreytileiki í mat er mikill, fitu haldið í lágmarki, grænmeti er  með öllum mat, fiskur oftar en einu sinni í viku og hlutfall farsvöru er lágt.

Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að kynna sér skýrsluna.

Skýrslan.