Samvinna leik- og grunnskóladeildar

admin





Picture

Í hverri viku hittast nemendur í 1. bekk í grunnskóla og skólahópur leikskólans í skemmtilegum verkefnum. Undanfarið hafa börnin verið að vinna með einingakubba, prisma, kapla- og legokubba. Áhersla er lögð á stærðfræði í samvinnunni og unnið hefur verið með nýrnabaunir og tölur og  skráningu þeirra. Einnig hefur verið unnið með plúsheiti talnanna 5 og 10 og 15. Margir eru orðnir býsna góðir og gaman er að fylgjast með því þegar eldri kenna sér yngri. Kveðja úr leikskólanum