Nýr aðstoðarleikskólastjóri

admin Fréttir

Staða aðstoðarleikskólastjóra við Auðarskóla var auglýst í september og aftur í október þar sem enginn með fagmenntun hafði sótt um.   Einn umsækjandi var að lokum um stöðuna; Herdís Erna Gunnarsdóttir og hefur hún verið ráðin tímabundið í stöðuna frá 1. nóvember.
 
Herdís gengdi stöðu aðstoðarleikskólastjóra við leikskólann frá hausti 2012 fram í ársbyrjun 2014 í forföllum þáverandi aðstoðarleikskólastjóra.  Hún hefur einnig starfað sem aðstoðarleikskólastjóri nú í haust frá 1.september eftir að Guðbjörg lét af störfum.
 
Herdís er með tvöfallt leyfisbréf sem grunnskólakennari og framhaldsskólakennari.  Hún er einnig með BS nám í líffræði.  Herdís er nú í viðbótarnámi og fær leyfisbréf á leikskólastigi á næstu mánuðum.  Herdís er með áratuga reynslu við kennslu og vinnu með börnum.

Við óskum Herdísi Ernu til hamingju með stöðuna og bjóðum hana velkomna til nýrra verkefna.