Nemendur á Álfadeild í gönguferð

admin





Picture

Yngri nemendur á Álfadeild fóru í gönguferð í góða veðrinu mánudaginn 17. september um Búðardal.

Farið var í hreyfistundinni og  gengið í  „stóran“ hring. Nokkur hús voru skoðuð álengdar: Skólinn þar sem stóru krakkarnir eru, bankinn,

heilsugæslan(sjúkrahúsið :-)), húsið hans Benónís



og Thomsenshús.  Einnig gafst gott tækifæri til að fara yfir umferðarreglurnar.  Allir komu sælir og ánægðir heim og beint í afmælisveislu Hauks Atla sem er 5  ára þennan dag.