Nemendafélagið safnar fyrir UNICEF

admin





Picture



Tveir drengir í unglingadeild Auðarskóla fengu þá hugmynd fyrir nokkrum vikum að safna fyrir UNICEF. Nemendafélagið hefur verið að skipuleggja söfnunina undanfarið.  Þar sem  mikið keppnisskap er í unglingahópnum og hann alveg til í að gera eitthvað flippað var ákveðið að nota tækifærið til slíks í leiðinni.

Dalamenn og fleiri hafa verið mjög duglegir að styrkja félagsstarf nemenda þegar þeir safna fyrir skemmtunum og öðru og er hér þakkað kærlega fyrir það. Nemendur vonast til að það standi ekki á því núna þegar á að leggja öðrum lið.




Svona fer söfnunin fram núna !


Þegar söfnunarupphæðin nær:








20.000


krónum fara Sindri Geir og Einar Björn í aflitun til Helgu Dóru.





50.000


krónum fara Hlynur Snær og Benedikt Máni í aflitun til  Helgu Dóru.





75.000


krónum fá Íris Dröfn og Kristín Þórarinsd rautt og bleikt hár hjá Helgu Dóru





100.000


kr fær Katrín Lilja umsjónarmaður félagsstarfs appelsínugult hár hjá Helgu Dóru.





Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í söfnuninni geta lagt upphæð að eigin vali inn á söfnunarreikninginn.







Söfnunarreikningur nemenda:







Númer: 0312-13-00345



Kennitala: 431210-1180




Vertu með !