Nemendafélag Auðarskóla fær gjöf

Auðarskóli Fréttir

Þann 11. apríl var undirritaður samningur milli bænda í Miðskógi og Reykjagarðs hf. um uppbyggingu kjúklingahúsa og eldis að Miðskógi í Dalabyggð.
Færði Reykjagarður hf.  nemendafélagi Auðarskóla styrk upp á 100.000 kr. sem nýta á í ferðasjóð nemenda.
Fulltrúar nemendafélagsins, Jasmín, Kristín, Baldur og Benóní fóru í Árblik ásamt kennara og tóku á móti gjöfinni.
Með á myndinni er Guðmundur Svavarsson framkvæmdarsstjóri Reykjagarðs.
Við þökkum kærlega fyrir þessa gjöf og mun hún nýtast okkur vel og ium leið óskum Miðskógarbændum til hamingju með nýju búgreinina.