Mötuneyti Auðarskóla

admin





Picture

Fyrir skólaárið 2011 – 2012 verða nokkrar breytingar á starfssemi Auðarskóla.  Ein þessara breytinga er að Sveitarfélagið Dalabyggð hefur kosið að endurnýja ekki samning við Samkaup á kaupum á heitum máltíðum fyrir Auðarskóla.

Nú 2. ágúst hóf starfssemi nýtt mötuneyti Auðarskóla.  Mötuneytið er staðsett í Dalabúð og mun sjá um heitan mat í hádegi fyrir grunn- og leikskóla og morgunmat fyrir grunnskóla.  Starfsmenn verða tveir; Katrín Lilja Ólafsdóttir matráður og Sigríður Melsteð skólaliði.