Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla

admin Fréttir

Á síðasta aðalfundi foreldrafélags Auðarskóla var ákveðið að breyta tímasetningu aðalfundanna og hafa þá í maí.   Fráfarandi stjórn klárar samt skólaárið en þá getur svo ný stjórn tekið við strax í upphafi næsta skólaárs, eða frá 1. ágúst.

Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla verður því haldinn í grunnskólanum fimmtudaginn 23. maí kl. 17:30.

Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Fráfarandi stjórn gerir grein fyrir starfi síðasta starfsárs og fjárhagslegri stöðu félagsins.
3. Fulltrúar í skólaráði gera grein fyrir starfi síðasta starfsárs.
4. Lagabreytingar.
5. Kosningar.  Stjórnarkjör, og kosning fulltrúa í fræðslunefnd og skólaráð ef þörf er á.
6. Önnur mál.

Foreldrafélag Auðarskóla er sameiginlegt foreldrafélag fyrir leik- og grunnskóla.

Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn mæti á aðalfund þar sem málefni fundarins varða alla foreldra. Vinsamlegast látið einhvern stjórnarmann vita ef þið komist EKKI.

Stjórn foreldrafélags Auðarskóla
Svanhvít Lilja Viðarsdóttir– formaður
Björt Þorleifsdóttir – gjaldkeri
Jónína Kristín Guðmundsdóttir – ritari
Jón Egill Jónsson – meðstjórnandi
 Hafrún Ösp Gísladóttir- meðstjórnandi