Leikskólinn búinn að taka upp kartöflurnar

admin





Picture

Kartöfluuppskeran var betri í ár en síðastliðið ár  hjá krökkunum á Álfadeild. Börn fædd 2006 tóku upp kartöflurnar og fengu með sér heim í soðið. Katrín matráður, sauð síðan restina og fengu allir glænýjar kartöflur með fiskinum sínum.  Algjört lostæti.

Þann 15. september var grænn dagur í leikskólanum. Flestir komu í einhverjum grænum fötum, það var föndrað með litinn og búnar til grænar vöfflur með grænum glassúr, sem allir borðuðu með bestu lyst.