Laugafjör UDN

admin

Laugafjör verður haldið á Laugum í Sælingsdal  1. – 2. apríl næstkomandi.  Laugafjör er fyrir börn í 5. -10. bekk á svæði U.DN. Í þetta sinn ætlum við líka að bjóða 8.-10. bekk af svæði H.S.S. á Ströndum.  Það kostar 1500 kr. á mann.  Skráning er hjá Herdísi Reynisdóttur í  síma 434-1541  á kvöldin eða á netfanginu

efrimuli@snerpa.is

Skráningu þarf að ljúka fyrir 31. mars.  Allur undirbúningur og framkvæmd Laugafjörs og Hólafjörs  undanfarin ár hefur verið unninn í sjálfboðavinnu af öflugum foreldrum og fleirum og erþað  forsendan fyrir því að hægt sé að hafa svona viðburð.  En þó hefur orðið erfiðara og erfiðara að fá fólk með í gæslu og eldhús svo við biðjum ykkur nú foreldrar og forráðamenn að endilega skrá ykkur í gæslu ef þið getið (sjá netfang og síma hér fyrir ofan). Dagskrá Laugafjörs verður sett inná www.udn.is um leið og hún er tilbúin                                                                       Stjórn U.D.N.