Jóladagskráin

admin





Picture



Á síðustu dögum fyrir jól er jólahátíðar minnst í stóru og smáu í Auðarskóla.  Næstu daga eru helstu atburðir skólans sem tengjast jólum.




Í dag

17. desember eru litlu jólin í leikskólanum

.  Að þessu sinni eru þau haldin í nýjum salarkynnum leikskólans kl. 15.30.




Á morgun,

þann 18. desember eru jólatónleikar tónlistarskólans

.  Verða þeir haldnir í Dalabúð kl. 17.00 – 18.00.  Þar verða jólalög í fyrirrúmi.




Fimmtudaginn

19. desember eru svo litlu jólin í grunnskólanum

.  Þeim lýkur með hátíðarverði í Dalabúð kl. 11.30 og er heimakstur áætlaður kl. 12.30.  Það er jafnframt síðasti skólaakstur ársins.




Þessi skemmtilegi árstími býður ekki bara upp á jólahátíð, heldur líka válynd veður og því vissara að fylgjast vel með veðurhorfum.