Bangsa- og náttfatadagur í leikskólanum

admin Fréttir

​Þann 29. október var haldinn bangsa- og náttfatadagur í leikskólanum.

Tóta skólahjúkrunarfræðingur kom í vitjun með „Bangsaheilsugæsluna“ í leikskólann og fræddi okkur um margt og mikið.

Nemendur á Dvergahlíð sýndu henni bangsana sína og fengu bangsarnir viðeigandi aðhlynningu.

Á Tröllakletti fræddi hún nemendur um mikilvægi handþvottar og fengu allir að æfa sig í handþvotti undir hennar umsjón.

Hún ræddi líka um smáslys og viðbrögð við þeim og kenndi nemendum að setja plástur á bangsana sem allir æfðu sig á. 

Að lokum var rætt um símanúmer Neyðarlínunnar sem er mikilvægt að kunna, 112, og fékk hún heldur betur góðar undirtektir.

Allir voru mjög áhugasamir og höfðu gagn og gaman af.

Við þökkum Tótu kærlega fyrir komuna og fræðsluna.

Kveðja úr leikskólanum.