Annað sætið hreppti Guðmundur K. Þorgrímsson

admin

Í gær for fram lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar á vegum samstarfsskólanna.  Keppnin var haldinn í sameinuðum grunn- og leikskóla í Hvalfjarðarsveit.   Alls voru það 12 keppendur í sjöunda bekk, frá fimm skólum, sem reyndu með sér.

Fyrir hönd Auðarskóla kepptu þeir Guðmundur Kári  þorgrímsson og Tómas Andri Jörgenson.   Báðir stóðu þeir sig með stakri prýði í keppninni.

Í heild  var upplestur afar góður og keppnin því jöfn.  Það tók dómnefnd nokkurn tíma að úrskurða um úrslit og á meðan gæddu gestir sér á veitingum.

Þegar úrslit voru gerð kunn kom  í ljós að Gumundur Kári  hreppti önnur verðlaun keppninnar.  Er honum hér óskað til hamingju með árangurinn.