Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla

admin


Á síðasta aðalfundi foreldrafélags Auðarskóla var ákveðið að breyta tímasetningu aðalfundanna og hafa þá í maí.   Fráfarandi stjórn klárar samt skólaárið en þá getur svo ný stjórn tekið við strax í upphafi næsta skólaárs, eða frá 1. ágúst.



Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla verður því haldinn í grunnskólanum fimmtudaginn 23. maí kl. 17:30.









Dagskrá:



1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.



2. Fráfarandi stjórn gerir grein fyrir starfi síðasta starfsárs og fjárhagslegri stöðu félagsins.



3. Fulltrúar í skólaráði gera grein fyrir starfi síðasta starfsárs.



4. Lagabreytingar.



5. Kosningar.  Stjórnarkjör, og kosning fulltrúa í fræðslunefnd og skólaráð ef þörf er á.



6. Önnur mál.


Foreldrafélag Auðarskóla er sameiginlegt foreldrafélag fyrir leik- og grunnskóla.


Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn mæti á aðalfund þar sem málefni fundarins varða alla foreldra. Vinsamlegast látið einhvern stjórnarmann vita ef þið komist


EKKI


.




Stjórn foreldrafélags Auðarskóla





Svanhvít Lilja Viðarsdóttir– formaður

Björt Þorleifsdóttir – gjaldkeri

Jónína Kristín Guðmundsdóttir – ritari

Jón Egill Jónsson – meðstjórnandi

Hafrún Ösp Gísladóttir- meðstjórnandi