Fulltrúi Dalabyggðar á barnaþingi 2023

Auðarskóli Fréttir

Barnaþing 2023 var haldið föstudaginn 17. nóvember í Hörpu. Barnaþing gefur stjórnvöldum tækifæri á að fylgja hugmyndum barnaþingmanna eftir og koma tillögum þeirra í framkvæmd. Embættinu ber að boða fjölbreyttan hóp barna til þingsins, alþingismenn, fulltrúa stofnana ríkis og sveitarfélaga, auk fulltrúa vinnumarkaðarins og frjálsra félagasamtaka sem koma að málefnum barna. Við upphaf þingsins leggur umboðsmaður barna fram skýrslu um …

Lubbi á afmæli

Auðarskóli Fréttir

Haldið var uppá afmæli Lubba á degi íslenskrar tungu, allir nemendur leikskólans komu saman í Fjallasal. Lubbi er 14 ára í dag og því var sungið fyrir hann afmælissönginn ásamt því að syngja 2 Lubba lög; A og B. Síðan voru borðaðir ávextir og saltkringlur í tilefni dagsins. Nemendur áttu glaðan dag eins og sjá má á myndum.  

Félagsvist á miðstigi

Auðarskóli Fréttir

Spilatímar á miðstigi eru á föstudögum í allan vetur. Nemendur hafa lært hin ýmsu spil og verið mikið fjör. Nú í dag, 10. nóvember var komið að félagsvist og var þátttaka með besta móti og góð stemming í hópnum. Tveir nemendur frá unglingastigi komu og aðstoðuðu við framkvæmd og að kenna reglur og annað. 

List fyrir alla – heimsókn

Auðarskóli Fréttir

Barnabóknahöfundarnir Eva Rún Þorgeirsdóttir og Blær Guðmundsdóttir komu í heimsókn í Auðarskóla og ræddu við nemendur úr 3.-7. bekk um sögur, hvernig þær verða til, hvað þarf til að búa til góða sögu og að allir geti fengið góðar hugmyndir. Eins kynntu þær sínar bækur og hvernig þær urðu til. síðan fóru nemendur í hugarflug með höfundum og sköpuðu aðalpersónu …

Hrekkjavaka í Dalabyggð

Auðarskóli Fréttir

Í Auðarskóla hafa nemendur á öllum stigum og leikskólanum unnið þemaverkefni í vikunni sem tengist hrekkjavökunni með einum eða öðrum hætti. Á morgun verður síðan hápunktur þeirrar vinnu og höfum við ákveðið að halda búningadag í öllum skólanum, leik- og grunnskóla. Nemendur og starfsfólk eru hvött til að mæta í búningum á morgun. Fylgihlutir og vopn skulu samt sem áður …

Farsældarsáttmálinn undirritaður í Auðarskóla

Auðarskóli Fréttir

Miðvikudaginn 18. október var haldinn fundur um Samvinnu barnanna vegna fyrir foreldra í sveitarfélaginu. Skiptir samvinna foreldra máli fyrir farsæld barna? Hvað get ég lagt af mörkum til að auka vellíðan barna í mínu nærsamfélagi? Góð mæting var á fundinn og fór fram gróskumikil vinna og umræður um málefni barna. Öll sem mættu var skipt uppí hópa og löguðu fram nokkur gildi …