Áfallaáætlun

Viðbrögð við áföllum                                          Áfalláætlun-Auðarskóli-Pdf

I. Hlutverk áfallaráðs:

  • Sjá um að afla staðfestra upplýsinga um atburð (skólastjóri).
  • Sjá um tilkynningar til allra hlutaðeigandi aðila (skólastjóri í samvinnu við umsjónarkennara, prest og fleiri).
  • Samskipti við fjölmiðla (skólastjóri).
  • Taka ákvörðun um hvaða viðbrögð eru viðhöfð m.t.t. aðstæðna (allt ráðið).
  • Sjá um framkvæmd viðbragða í samráði við þá fjölskyldu sem orðið hefur fyrir áfalli (allt ráðið).
  • Stuðningur og ráðgjöf í formi viðtala við nemendur, foreldra og samstarfsfólk (sálfræðingur, sérkennari, hjúkrunarfræðingur, prestur og fl. eftir atvikum).
  • Skráir niður viðbrögð og verklag (verkaskipting innan ráðsins).
  • Metur atburðarás og viðbrögð að áfallavinnu lokinni (allt ráðið).

II. Viðbrögð við langvinnum sjúkdómum:

  • Starfsliði og nemendum sé greint frá því ef einhver úr þeirra hópi þarf að vera langdvölum burt frá skóla/starfi vegna alvarlegra veikinda.
  • Viðkomandi bekk og starfsliði sé greint frá alvarlegum veikindum í fjölskyldu nemanda.

III. Viðbrögð við slysum

  • Starfsliði og nemendum sé greint frá því ef einhver úr þeirra hópi hefur lent í alvarlegu slysi og þarf að vera langdvölum burt frá skóla/starfi af þeim sökum.
  • Viðkomandi bekk og starfsliði sé greint frá alvarlegu slysi í fjölskyldu nemanda.
  • Verði slys á nemanda á skólatíma á skólinn að hafa samband við forráðamenn þess nemanda sem á í hlut.
  • Verði alvarlegt slys á starfsmanni á skólatíma á skólastjóri að hafa samband við aðstandendur.
  • Skólastjórnendur gæti þess að enginn fari heim úr skólanum með rangar eða misvísandi upplýsingar um neinn þátt málsins. Í því sambandi er mikilvægt að senda bréf með helstu upplýsingum heim með nemendum.
  • Sýni fjölmiðlar áhuga, er skólastjóri eini tengiliður skólans við þá. Allir aðrir skulu vísa á hann varðandi allar upplýsingar.

IV. Viðbrögð samdægurs við andláti starfsmanns utan skólans

  • Andlátið þarf að vera staðfest og réttar upplýsingar um aðdraganda þess.
  • Áfallaráð kallað saman.
  • Þess gætt að náin skyldmenni hins látna við nám eða störf innan skólans hafi fengið fréttina áður en öðrum er tilkynnt andlátið.
  • Starfsmönnum skólans tilkynnt um andlátið í næstu frímínútum og réttar upplýsingar gefnar um tildrög.
  • Umsjónarkennarar flytji nemendum sínum fregnina í næsta tíma og dreifi til þeirra bréfi skólastjórnenda til forráðamanna. Einnig mun ritari skólans senda afrit af bréfi í tölvupósti til forráðamanna.
  • Sé starfsmaðurinn sérstaklega tengdur einhverjum úr hópi nemenda, t.d. ef um umsjónarkennara er að ræða, þurfa skólastjórnendur og meðlimir áfallaráðs að annast tilkynninguna og vera reiðubúnir að mæta viðbrögðum bekkjarins.
  • Sjá einnig ábendingar í næsta kafla um kertaljós og minningarstund.
  • Flaggað skal í hálfa stöng en reynt að halda uppi eins eðlilegu skólastarfi og unnt er.
  • Skólastjórnendur sendi strax samúðarkveðjur til fjölskyldu hins látna.
  • Borð með blómum, mynd af hinum látna og kerti standi uppi í skólanum fram yfir útför.

V. Viðbrögð samdægurs við láti nemanda utan skólans

  • Andlátið fengið staðfest og réttar upplýsingar um aðdraganda þess.
  • Áfallaráð kallað saman.
  • Þess gætt að náin skyldmenni hins látna við nám og störf innan skólans hafi fengið fréttina áður en öðrum er tilkynnt andlátið.
  • Starfsmönnum skólans tilkynnt um andlátið í næstu frímínútum og réttar upplýsingar gefnar um tildrög.
  • Skólastjóri eða umsjónarkennari tilkynni andlátið strax í næsta tíma í viðkomandi bekk og öðrum nemendum skólans. Þeir gæti þess að gefa réttar upplýsingar um tildrög og dreifi bréfi skólastjórnenda til forráðamanna. Einnig mun ritari skólans senda afrit af bréfi í tölvupósti til forráðamanna.
  • Í kjölfar tilkynningar aðstoðar áfallaráð skólastjórnanda og starfsfólk skólans að skapa aðstæður til minningarstunda, t.d. kveikt sé á kerti en framkvæmd taki mið af aðstæðum svo sem tildrögum andláts, trúfélagi, aldri nemanda o.sv.frv.
  • Flaggað skal í hálfa stöng en reynt að halda uppi eins eðlilegu skólastarfi og unnt er.
  • Skólastjórnendur sendi strax samúðarkveðjur til fjölskyldu hins látna.
  • Borð með blómum, mynd af hinum látna og kerti standi uppi í skólanum fram yfir útför.

VI. Viðbrögð samdægurs við andláti í skóla

  • Eigi andlát sér stað á skólatíma þarf að kalla til lögreglu og prest sem sjá um að aðstandendur fái réttar fréttir um málið áður en fjölmiðlar fjalla um það.
  • Sýni fjölmiðlar áhuga, er skólastjóri eini tengiliður skólans við þá. Allir aðrir skulu vísa á hann varðandi allar upplýsingar.
  • Að öðru leyti skal fylgt leiðbeiningum í köflum IV og V eftir því sem við á.

VII. Viðbrögð samdægurs við andláti aðstandenda nemanda

  • Látist foreldri eða annar náinn aðstandandi nemanda, skal starfsliði greint frá því og viðkomandi bekkjardeild tilkynnt það sérstaklega að nemandanum fjarstöddum.
  • Samúðarkveðja / blóm verði send til nemanda frá bekkjarfélögum og starfsliði skólans.
  • Nemandanum skal tryggð aðstoð fagaðila innan skólans eftir því sem þörf krefur.
  • Að öðru leyti skal haft samráð við viðkomandi fjölskyldu um viðbrögð.
  • Meta þarf stuðning við barn við endurkomu í skóla.

VIII. Viðbrögð í tengslum við útför starfsmanns

  • Skólastjórnendur skrifi minningagrein frá skólanum og mæti við útförina sem fulltrúar skólans.
  • Sé um umsjónarkennara að ræða fái nemendur aðstoð við að skrifa minningagrein og að senda aðstandendum samúðarkveðju.
  • Nemendur kunna að vilja fylgja umsjónarkennara til grafar. Í slíkum tilvikum er rétt að fá prest til þess að fræða bekkinn um útförina og búa nemendur undir stundina. Einnig er mögulegt að prestur eigi sérstaka helgistund með nemendum við kistu í kirkju.

IX. Viðbrögð í tengslum við útför nemanda

  • Skólastjórnendur eða umsjónarkennari skrifi minningagrein frá skólanum og mæti við útför sem fulltrúar skólans.
  • Varðandi nemendur vísast í kafla VII og VIII um útför, minningagrein og samúðarkveðjur.

X. Áfall í skólaleyfi.

  • Ef starfsliði skólans er kunnugt um að áfall er snertir nemendur eða starfsfólk hafi orðið í skólaleyfi getur málsmeðferð í meginatriðum verið eins og að ofan greinir.

XI. Áframhaldandi stuðningur eftir áfallið

  • Kennarar, einkum umsjónarkennarar, búi sig undir að nemendur vilji ræða um dauðann, vinna verkefni um dauðann eða á annan hátt að fá útrás eftir áfallið. Í þeirri vinnu er áfallaráð bakhjarl en kemur inn í bekkinn eftir þörfum.
  • Þeir einstaklingar og hópar, sem áfallið hefur mest áhrif á, þurfa að eiga aðgang að stuðningsaðilum innan skólans sem vinna með þeim úr áfallinu og meta í hverju tilviki hvað á best við.
  • Mikilvægast er að starfsmenn skólans séu eðlilegir og hlýlegir en varist alla tilgerð. Tillitsemi og virðing felst m.a. í því að staldra ekki of lengi við áföllin heldur halda áfram lífsgöngunni.