Samstarf

Samstarf við grunnskóladeild

Nemendur í elsta árgangi leikskólans taka reglulega þátt í ýmsum uppákomum og atburðum í grunnskólanum. Þar má nefna að þeir taka þátt í danskennslu, þeir eru viðstaddir ýmsar heimsóknir í grunnskólann og koma vikulega og sitja kennslustundir með yngstu nemendum í grunnskólanum. Þá koma yngstu nemendur í grunnskólanum reglulega í heimsókn í leikskólann.

Samstarf við nærsamfélag

Dvalarheimilið Silfurtún. Heimilið er heimsótt mánaðarlega af eldri nemendum leikskólans. Þá er gjarna sungið með eldriborgurum.
Hérðasbókasafn Dalabyggðar. Safnið er heimsótt mánaðarlega af leikskólabörnum og er þá gjarnan upplestur hluti dagskrár.
Kaffiboð leikskólans. Leikskólinn býður þrisvar á ári hverju til morgunkaffis í leikskólanum. Kaffiboðin þrjú eru: Bóndadagskaffi fyrir alla afa og pabba, konudagskaffi fyrir allar mömmur og ömmur og eldri borgarakaffi fyrir alla eldriborgara.

Samstarf heimilis og skóla

Að koma og sækja barn

Þegar foreldrar koma eða sækja barn sitt í leikskólann fara fram helstu samskipti á milli foreldra og starfsmanna. Þótt mínúturnar séu fáar eru þær notaðar til að skiptast á boðum og helstu fréttum af því sem er að gerast í lífi barnsins. Foreldrum er velkomið að staldra við og spjalla eða líta inn í leikskólann af og til og taka þátt ef þeir hafa tíma.

Foreldraviðtöl

Allir foreldrar eru boðaðir í foreldraviðtöl tvisvar sinnum á hverjum vetri en foreldrar geta einnig óskað eftir viðtali á öðrum tímum. Í þessum viðtölum er m.a. rætt um líðan barnsins á leikskólanum, þroska barnsins, hvernig barninu gengur í félagslegum samskiptum o.fl. Deildarstjórar geta líka boðað foreldra í viðtal ef hann telur þörf á því.

Foreldrafélag

Í Auðarskóla er sameiginlegt foreldrafélag og sameiginlegt skólaráð fyrir leik- og grunnskóla. Gætt er þess í lögum foreldrafélagsins að fulltrúar foreldra barna á leikskóla séu ávalt í stjórn foreldrafélagsins og í skólaráði.