Tónfundir

admin

​Þriðjudaginn 12. nóvember og fimmtudaginn 14. nóvember verða tónfundir hjá tónlistardeild Auðarskóla. Nánari upplýsingar verða sendar út þegar nær dregur. Aðstoðarskólastjóri

Tónfundir

admin Fréttir

​Þriðjudaginn 12. nóvember og fimmtudaginn 14. nóvember verða tónfundir hjá tónlistardeild Auðarskóla. Nánari upplýsingar verða sendar út þegar nær dregur. Aðstoðarskólastjóri

Leikskólinn er Vináttuleikskóli

admin Fréttir

Leikskóli Auðarskóla er nú formlega kominn af stað með Vináttuverkefnið. Vinátta er forvarnarverkefni Barnaheilla gegn einelti ætlað leikskólum og fyrstu bekkjum grunnskóla. Verkefnið á rætur að rekja til Danmerkur og ber þar heitið Fri for mobberi. Um er að ræða tösku sem inniheldur nemendaefni og kennsluleiðbeiningar fyrir starfsfólk auk efnis til að nota með foreldrum og starfsfólki. Gert er ráð fyrir fjölbreyttum vinnubrögðum svo …

Karellen í leikskólann

admin

Nú er mánuður liðinn síðan Karellen var tekið upp í leikskólanum. Karellen er fyrsta kerfið sinnar tegundar í heiminum sem býður upp á heildarlausnir fyrir leikskóla. Það er skráningar- og samskiptaforrit sem auðveldar öll samskipti og gerir skráningar skilvirkari. Í gegnum Karellen fá foreldrar aðgang að helstu upplýsingum varðandi barnið sitt; mætingar, matar- og svefnskráningar , veikinda – og leyfisskráningar, …

Bóndadagskaffi í leikskólanum

admin Fréttir

Á föstudaginn 19. janúar síðast liðinn var haldið upp á bóndadaginn í leikskólanum.  Karlmennirnir í lífi barnanna fjölmenntu og boðið var upp á kaffi og með´í.  Að sjálfsögðu var þorramatur líka á boðstólum; súrir hrútspungar, sviðasulta, hákarl, harðfiskur og flatkökur með hangikjöti.  Einnig var farið í nokkra gamla leiki eins og fuglafit, völuspá, störu og hoppa yfir sauðalegg. Börnin bjuggu …

Styrkur til tónlistardeildar Auðarskóla

admin

Á aðalfundi Stéttarfélags Vesturlands, sem haldinn var þann 30. apríl síðast liðinn, var samþykkt að stéttarfélagið styrkti tónlistarkennslu á félagssvæðinu með því að leggja lið Tónlistardeild Auðarskóla. Styrkurinn til Tónlistardeildar Auðarskóla hljóðar upp á 200.000 krónur og er ætlaður til kaupa á hljóðfærum. Við þökkum Stéttarfélagi Vesturlands kærlega fyrir þennan styrk.

Skólahald fellur niður í öllum deildum Auðarskóla

admin Fréttir

Nú hefur verið ákveðið að öll starfsemi Auðarskóla falli niður á morgun, bæði leik- og grunnskóli. Skólinn verður því lokaður á morgun 10. desember. Þessi ákvörðun er tekin með bæði hagsmuni nemenda og starfsmanna að leiðarljósi. Það kemur síðan í ljós á morgun hvað verður ákveðið varðandi miðvikudaginn en eins og staðan er núna er líklegast að skóli falli líka …

Skólastarf fer vel af stað í Auðarskóla

admin

Skólastarf í Auðarskóla er farið af stað og gengur vel. Í sumar voru þó nokkuð miklar framkvæmdir hér í skólanum sem gengu að mestu leiti eftir áætlun. Kerfisloft var sett í eina stofu sem breytir hljóðvist í henni til miklilla muna eins voru lögð ný gólfefni á stofur í neðri álmu skólans þar sem yngsta stig hefur sínar stofur. Að …

Skólasetning grunnskólans

admin

Skólasetning Auðarskóla fer fram fimmtudaginn 22. ágúst í Dalabúð og hefst athöfnin klukkan 10:00. Klukkan 10:20 verður kynning fyrir nemendur yngsta stigs, klukkan 10:45 verður kynning fyrir nemendur á miðstigi og klukkan 11:10 fyrir nemendur elsta stigs. Gert er ráð fyrir að foreldrar grunnskólabarna mæti á skólasetninguna og kynningar þeirra stiga sem þeirra börn eru á. Einnig minnum við á: …

Bangsa- og náttfatadagur í leikskólanum

admin Fréttir

​Þann 29. október var haldinn bangsa- og náttfatadagur í leikskólanum. Tóta skólahjúkrunarfræðingur kom í vitjun með „Bangsaheilsugæsluna“ í leikskólann og fræddi okkur um margt og mikið. Nemendur á Dvergahlíð sýndu henni bangsana sína og fengu bangsarnir viðeigandi aðhlynningu. Á Tröllakletti fræddi hún nemendur um mikilvægi handþvottar og fengu allir að æfa sig í handþvotti undir hennar umsjón. Hún ræddi líka um smáslys …